|
|
|
Já sæll.... Já já við erum hérna enn... Við erum reyndar búin að gera margt síðan síðast t.d. flytja í annan bæ:-) Nú búum við í Vamdrup sem er lítill bær um 15 km frá Kolding. Við leigðum raðhús í 2 ár og líkar vel,þrátt fyrir að þvottavél og uppþvottavél séu búnar að gefa upp andann. Við erum búin að kaupa nýja þvottavél og nú er verið að skoða nýja uppvottavél. Það er bara ekki hægt að lifa án uppþvottavélar ef maður er vanur slíkum munaði. Nú er maður líka farin að vera meira háður bílnum. Hér áður fyrr var hann hálfgerður munaður, enda bara búin að eiga hann í ár. (ótrúlegt en satt) En núna þegar maður býr "ud på landet" er þetta mesta þarfaþing. Við erum líka mun meira vör við hvað baunarnir eru margir hverjir með vanstillt ljós á bílunum, eða jafnvel háuljósin á þegar þeir mæta manni eða þegar þeir keyra fyrir aftan mann. Alveg óþolandi, maður er oft hálfblindur þegar maður kemur heim. Ég er farin að fara í sund á morgnana, Vamdrup svommehal er lítil gömul innilaug og fólkið sem stundar morgun sund er svona álíka gamalt og þreytt. Einnig virðast klossar vera inn hérna:-) Maður verður alveg var við að maður er komin í smábæ en hér er samt allt sem þarf: matvöruverslanir, 2x tyrkjapizzustaðir, 2 keiluhallir og sundlaug.... Núna er bara að bíða eftir vorinu og njóta þess að vera með garð fyrir framan og aftan húsið og sól allan daginn:-) Bið að heilsa hér úr storminum. Knúss Gunnslan
Gleðileg jól!
Engar fréttir eru góðar fréttir...
En mikið af fréttum eru ennþá betri, ekki satt? Allavega erum við búin að skrifa undir leigusamning og flytjum til Vamdrup þann 1. janúar. Vamdrup er 15 km fyrir utan Kolding og er lítill sætur bær. Við erum búin að leigja raðhús næstu 2 árin og leggst flutningurinn mjög vel í okkur. Ekki síst vegna þess að þessi íbúð er orðin frekar lítil. Við vorum mjög heppin að næla í þetta hús, því að það voru 30 aðrir sem höfðu áhuga á að leigja það:-) Og ekki skemmir það fyrir að leigan er lægri en hér á Fynsvej... Það er nóg að gera hjá okkur hjónunum í vinnunni og í fyrirtækinu okkar litla, sem verður kannski ekkert svo lítið mikið lengur. Við erum í samningaviðræðum við riiiisa fyrirtæki um riiisa samning sem gæti orðið alveg riiisa dæmi. En við segjum ykkur betur frá því þegar það er komið á hreint. Íslandsferðin var algjört æði og var rosalega gaman að hitta alla. Við erum með fleiri Íslandsferðir í bígerð en enga fyrir jól. Það eru meira og minna allir dagar uppbókaðir fram að áramótum og fram í janúar vegna flutninga og vinnu. En það líður allavega ekki jafn langur tími og milli síðust ferða, því lofum við. Biðjum að heilsa.... Kveðja Gunna
Vefbúð! hæhæ erum búin að opna barnafatavefbúð soddan.com Þar er að finna barnaföt fyrir 0-6 ára. ofsa gaman! see ya
Madrid boogie
Básúnuleikarinn í þessu myndbandi er eitthvað kunnulegur. Ég er ekki frá því að þetta sé hann stóri bróðir.
|