|
|
|
Hæ Sit hér í vinnunni og er strax byrjaður að kíkja á klukkuna og bíð eftir að komast heim, Hermann littli bró ætti að koma með lestinni til Kolding eftir c.a 10 min... Hann ætlar að spila með okkur á klakamótinu í horsens um helgina. Bara 1 æfing eftir fyrir mót og ef ég kemst í gegnum hana er ég mjög sáttur. Munaði minnstu að ég rústaði mér á síðustu æfingu en það varð ekkert alvarlegra en bólgið og marið hné, verð að passa mig núna! Það kemur u2 kópíband á morgun hingað til kolding og spilar, við munum skella okkur þangað með gústa og mads vinnufélaga, þarf að kaupa miða á eftir því að það er víst alltaf uppsellt þegar þeir spila. síya leita
2 í kotinu
jamm, ég og Ingunn Anna erum 2 heima í augnablikinu, en hún gunna fór til stokkhólmar með seljasauma stelpunum og kemur aftur heim á sunnudag. Við feðgininn höfum það fínt á meðan og er manni alveg haldið við efnið. Ég og gústi kíktum í leikhúsið hér í bæ að hlusta á fyrirlestur/viðtal við franz beckenbauer "der keizer". það var mjög interesting og gaman að sjá gömlu hetjuna tjá sig um fótboltan, verst að annar spyrillinn var ekki alveg að ná að hemja sig og var hún einsog overexætet lítill krakki í sykursjokki að reyna að spyrja keisarann spurninga, hafði ekki heimil á rödd né hreifingum á sviði svo má ekki gleyma hinum íllræmda danska ensku hreim pjúk! ég byrja svo að vinna aftur á mánudag og verður fínt fyrir okkur öll að komast í rútínu aftur. Svo verður farið í það að finna dönsku tíma handa mér, en vinnann vill endilega borga fyrir mig tíma sem verða væntanlega einkatímar í dönsku, þeir segjast hafa meira að gera fyrir mig ef ég verð betri í dönsku, sem er bara gott ! Að lokum vil ég óska þeim frænkum mínum Hildi og Berglindi til hamingju með íbúðirnar sem þeir voru að kaupa. bless í bili. ps: fæ aldrei leið á þessu videoi, verið að gera grín af þessi blessaða túngumáli sem danskan er. videoið er c.a 4 min, enjoy!!!
tónleikur,gólf og teiti Já, alltaf er stuð hérna hjá okkur. Fórum í afmælisteiti hjá sigga sæta á föstudag þar sem var vel útlagt af góðgæti og ýmsum vökva til að skola því niður, fékk mér nokkra hvíta rússa sem smökkuðust mjög vel, allir skemmtu sér hið besta og var kvöldinu slúttað með singstar þar sem undirskrifaður fór hamförum og baunaparið tók dúett!!! takk fyrir! Ég fór einnig að sjá í síðustu viku metalbandið Testament, gæjar sem komu upp ásvipuðum tíma og Metallica, megadeth, anthrax og fleiri, mjög heví stöff en mikið svakalega var gaman, setti myndir frá tónleikunum inn hjá Ingunni önnu ef þið viljið tékka. Svo fór ég í gólf áðan með gústa porno í fyrsta sinn í llllllllaaaaaaaangan tíma, gekk barasta fínt og vona ég að við getum tekið hring þegar Hermann bróðir kíkir í sept. soddan.com er að smella saman en við látum vita þegar hún er komin í loftið. snjarf
Halló! Gunna fær áfall þegar hún sér að ég er búinn að blogga! læt þetta næja í bili. erum að fara til köben að skoða nýjustu tísku og er ekki slæmt að vera á lönum við það. svo förum við til stebba eftir það. bið að heilsa!
Bloggeríbloggeríblogg.... Heijsa..við erum frekar lélegir bloggarar. Spurning um að leggja það undir betri helminginn hvort að við eigum að sleppa þessu. Hann er hvort sem er löngu hættur að blogga. Sjáum til :-) Við mæðgurnar erum eina heima, Hreiðar fór að horfa á íslenskan-danskan fótboltaleik í Herning. Við Ingunn Anna fórum í sund með Önnu og Alexander. Ingunn Anna elskar að fara í sund. Við höfum reyndar ekki farið í sund í marga marga mánuði en hún er sko ekki vatnshrædd sú stutta. Nú sefur hún, alveg búin á því og mamman er alveg að fara að lúlla hjá henni.... Ég er svo að fara til Sverige með mínum kæru gömlu vinkonum. Við ætlum að spóka okkur í Stokkhólmi saman og hafa það gott. Ég hlakka mikið til enda er ég ekki búin að upplifa almennilega saumaklúbbs stemmningu í langan tíma. Það jafnast ekkert á við að hitta æsku vinkonurnar. Ég skora á hinn vinkonuhópinn minn að gera það sama...það væri geðveikt! Þó það vær nú ekki nema að hittast í Köben eina helgi...Hafdís Við erum að fara að skoða hús á morgun...gerum nú engar væntingar enda margir sem eru búnir að fá að skoða á undan okkur. Þetta er lítið hús úti í sveit og leigan er svo lág að það er fyndið.. .Okkur líkar vel hér, það er ekki það... en við erum ekki jafn ánægð með nágrannana : Við höfum 2 fíla hérna fyrir ofan okkur sem eru bara óþolandi og svo erum við með 2 tecnotæfur hérna við hliðina sem eru frekar þreytandi og síðast en ekki síst svona c.a 10 Letta sem eru bara pirrandi í risinu í bakhúsinu...bara bögg! Ef að allir nágrannarnir væru eins og Tøve gamla á efstu hæðinni og kallinn sem varla sést sem býr á 1 hæð væri þetta yndislegt...en lífið er víst ekki svo ljúft. Jæja nú er ég búin að segja frá því mesta og vonandi er styttra í næsta blogg. Annars held ég að Pétur stóri bróðir sé í Minneapolis svo ég vildi gjarnan heyra frá honum og hans fjölskyldu. Manna líður ekki vel þegar heil brú hrynur....
|