Entry: Engar fréttir eru góðar fréttir... Saturday, November 03, 2007



En mikið af fréttum eru ennþá betri, ekki satt?

Allavega erum við búin að skrifa undir leigusamning og flytjum til Vamdrup þann 1. janúar. Vamdrup er 15 km fyrir utan Kolding og er lítill sætur bær.
Við erum búin að leigja raðhús næstu 2 árin og leggst flutningurinn mjög vel í okkur. Ekki síst vegna þess að þessi íbúð er orðin frekar lítil.

Við vorum mjög heppin að næla í þetta hús, því að það voru 30 aðrir sem höfðu áhuga á að leigja það:-) Og ekki skemmir það fyrir að leigan er lægri en hér á Fynsvej...

Það er nóg að gera hjá okkur hjónunum í vinnunni og í fyrirtækinu okkar litla, sem verður kannski ekkert svo lítið mikið lengur. Við erum í samningaviðræðum við riiiisa fyrirtæki um riiisa samning sem gæti orðið alveg riiisa dæmi.
En við segjum ykkur betur frá því þegar það er komið á hreint.

Íslandsferðin var algjört æði og var rosalega gaman að hitta alla. Við erum með fleiri Íslandsferðir í bígerð en enga fyrir jól. Það eru meira og minna allir dagar uppbókaðir fram að áramótum og fram í janúar vegna flutninga og vinnu.

En það líður allavega ekki jafn langur tími og milli síðust ferða, því lofum við.

Biðjum að heilsa....

Kveðja
Gunna


   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments