|
Við erum reyndar búin að gera margt síðan síðast t.d. flytja í annan bæ:-) Nú búum við í Vamdrup sem er lítill bær um 15 km frá Kolding. Við leigðum raðhús í 2 ár og líkar vel,þrátt fyrir að þvottavél og uppþvottavél séu búnar að gefa upp andann. Við erum búin að kaupa nýja þvottavél og nú er verið að skoða nýja uppvottavél. Það er bara ekki hægt að lifa án uppþvottavélar ef maður er vanur slíkum munaði. Nú er maður líka farin að vera meira háður bílnum. Hér áður fyrr var hann hálfgerður munaður, enda bara búin að eiga hann í ár. (ótrúlegt en satt) En núna þegar maður býr "ud på landet" er þetta mesta þarfaþing. Við erum líka mun meira vör við hvað baunarnir eru margir hverjir með vanstillt ljós á bílunum, eða jafnvel háuljósin á þegar þeir mæta manni eða þegar þeir keyra fyrir aftan mann. Alveg óþolandi, maður er oft hálfblindur þegar maður kemur heim. Ég er farin að fara í sund á morgnana, Vamdrup svommehal er lítil gömul innilaug og fólkið sem stundar morgun sund er svona álíka gamalt og þreytt. Einnig virðast klossar vera inn hérna:-) Maður verður alveg var við að maður er komin í smábæ en hér er samt allt sem þarf: matvöruverslanir, 2x tyrkjapizzustaðir, 2 keiluhallir og sundlaug.... Núna er bara að bíða eftir vorinu og njóta þess að vera með garð fyrir framan og aftan húsið og sól allan daginn:-) Bið að heilsa hér úr storminum. Knúss Gunnslan |
| Leave a Comment: |